Raflagnir er sá hluti eignarinnar sem sér til þess að rafmagn komist frá aðaltöflu/deilitöflu eignarinnar til viðeigandi staða. Raflagnir eru yfirleitt ekki sjáanlegar nema í formi ljóssins sjálfs.
Ýmsir ávinningar fylgja því þegar eldri raflagnir eru endurnýjaðar, verðgildi eigna og rekstraröryggi eykst, brunahætta og líkur á bilunum minnka. Gamlar rafmagnstöflur geta verið hættulegar ekki síst ef þær eru úr tré eða staðsettar inni í skápum þar sem nóg er um eldsmat. Þá er gott að láta fagmann kanna ástand töflunnar og gera úrbætur.
Mikilvægt er að gæta að því að leiðslur í húsum séu heilar og valdi þannig ekki slysahættu, gömul einangrun leiðara getur skemmst með tímanum. Afleiðing af því getur verið skammhlaup sem kveikir í. Ljósarofar og tenglar (innstungur) þurfa að vera vel festar. Sambandsleysi í þessum búnaði getur valdið hættu á íkveikju.
Lekastraumsrofar eru helsta öryggisatriði rafkerfisins, ef bilun verður í raflögn á rofinn að slá út og getur þannig bjargað mannslífum. Gott er að prófa lekastraumsrofann reglulega með að ýta á hnappinn á honum þá á hann að slá út. Mikilvægt er að láta fagmann gera endurbætur ef hann virkar ekki.
Innifalið í skoðun raflagna er skoðun á öllu rafkerfi eignarinnar, samantekt úr skoðun, viðeigandi tæki & tól sem þarf til verksins ásamt akstri.